Sækja vordagskrána 2026 sem PDF

Viðburðir

reset icon
Hreinsa síu
Tegund viðburðar
Takk fyrir. Þetta er móttekið!
Úbbs! Eitthvað fór úrskeiðis.
Ingólfsstræti 22
Apr 10, 2026
Apr 10, 2026
19:00
20:30
mín
Fyrirlesari:

Sigvaldi Hjálmarsson

Dagskrá helguð minningu Sigvalda Hjálmarssonar og því mikla starfi sem hann vann í þágu félagsins. Nokkrir fyrirlesarar fjalla um Sigvalda.

April 10, 2026 07:00 PM
April 10, 2026 08:30 PM
Ingólfsstræti 22
Iceland
Dagskrá helguð minningu Sigvalda Hjálmarssonar og því mikla starfi sem hann vann í þágu félagsins. Nokkrir fyrirlesarar fjalla um Sigvalda.
Ingólfsstræti 22
Apr 17, 2026
Apr 17, 2026
19:00
20:00
mín
Fyrirlesari:
Kristján Leóson

Hvað er lífið?

HVAÐ ER LÍFIÐ? Fyrir rúmum 80 árum flutti eðlisfræðingurinn og Nóbelsverðlaunahafinn Erwin Schrödinger röð fyrirlestra við Trinity College í Dublin fyrir almenning undir titlinum "Hvað er lífið?" Fyrirlestrar þessir voru gefnir út á prenti árið 1944 og komu út í íslenskri þýðingu Guðmundar Eggertssonar erfðafræðings árið 2021. Annar Nóbelsverðlaunahafi, frumulíffræðingurinn og erfðafræðingurinn Paul Nurse, gaf út bók með sama titli árið 2020 þar sem hann veltir fyrir sér hvort líffræðin hafi færst nær því að útskýra hvað lífið er. Þessar vangaveltur eru sérstaklega mikilvægar í ljósi yfirstandandi hruns í líffræðilegum fjölbreytileika á jörðinni. Í fyrirlestrinum mun Kristján Leósson fara yfir hugmyndir Schrödingers og Nurse og leita svara við því hvort við vitum raunverulega hvað lífið er og hvernig það kviknaði.

April 17, 2026 07:00 PM
April 17, 2026 08:00 PM

Annað efni
Ingólfsstræti 22
Apr 24, 2026
Apr 24, 2026
19:00
21:00
120
mín
Fyrirlesari:
Margrét Hugrún, Eva Rós, Kvika Föld, Kolbrún Kolbeinsdóttir

SÓMATÍSK SAMVERA

Síðasti dagskrárliður fyrir aðalfund er í boði stúkunnar Markar en nú komum við saman og gerum ýmsar sómatískar æfingar sem hafa jákvæð áhrif á sál og sinni. Þessar æfingar þykja sérlega góðar fyrir einstaklinga sem kannast við það að hugur þeirra sé sístarfandi. Meðal æfinga verða til dæmis: Æfing fyrir vagustaug: Markvissar augnhreyfingar eru gerðar til að senda skilaboð um öryggi beint til taugakerfisins og kveikja þannig á slökunarviðbragði líkamans. Seiglu-teygjur (Pandiculation): Teygjur líkt og mörg dýr gera þegar þau vakna. Vöðvarnir mjúklega spenntir áður en þeim er sleppt ofurhægt til að endurforrita vöðvaminnið. Hristingur: Uppsöfnuð streita og stöðnuð orka er losuð með því að leyfa líkamanum að hristast frjálst. Þetta hjálpar til dæmis vöðvum og bandvef að slaka á djúpt innan frá. „Voo“ hljóðöndun: Djúpir tónar eru notaðir til að skapa titring í kvið og mjaðmagrind, sem „nuddar“ innri líffæri og róar hugann á áhrifaríkan hátt. Kross-samhæfing: Þetta er vinna með hreyfingar sem krossa miðlínu líkamans til að samstilla hægra og vinstra heilahvel, sem aftur eykur einbeitingu og innri ró. Að lokum er stiginn léttur dans undir handleiðslu Kviku, og svo haldið á efri hæð í veitingar og samræður. Meðlimir, vinir og vinkonur hjartanlega velkomin!

April 24, 2026 07:00 PM
April 24, 2026 09:00 PM

Apr 25, 2026
Apr 25, 2026
14:00
16:00
mín
Fyrirlesari:

Aðalfundur Lífspekifélagsins

Aðalfundur félagsins fer fram í sal hússins, laugardaginn 25. apríl. Nýir og gamlir félagsmenn eindregið hvattir til að mæta. Kaffi og meðlæti að fundi loknum.

April 25, 2026 02:00 PM
April 25, 2026 04:00 PM