Lífspekifélagið - The Theosophical Society er alþjóðlegt félag, stofnað 1875 í New York. Höfuðstöðvar þess eru í Adyar í Chennai (Madrasfylki) á Indlandi og það starfar í deildum um heim allan. Fyrsta grein Lífspekifélagsins á Íslandi var stofnuð í Reykjavík 17. nóvember 1912. Íslandsdeild Lífspekifélagsins var stofnuð 1921.
Með því að gerast meðlimur færð þú aðgang að ýmsu efni & fróðleik.
Í Lífspekifélaginu geta menn kynnst á tiltölulega stuttum tíma, straumum og stefnum í andlegum málum, þeir læra um athyglisverðar bækur og tímarit og kynnast öðru fólki sem hefur svipuð áhugamál, þeir læra af reynslu annarra og miðla um leið sínum eigin skilningi.
Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit.
Nú er hægt að skrá sig í Lífspekifélagið með einföldum hætti.
Taktu þátt í upplýsandi viðburðum og vinnustofum sem stuðla að persónulegum vexti, stuðla að einingu og kanna leyndardóma lífsins og meðvitundarinnar.