Lesfundir eru haldnir hvern sunnudag, frá 6. október til 8. desember á milli kl. 11:00 til 12:30. Fundirnir hefjast á stuttri hugleiðingu og svo er farið í efnið, Jógasútrur Patanjalis, með skýringum A.A.B. Lesefnið er á íslensku.
Líf í Kristi- frá sjamanisma til trúar Sólveig Katrín hefur frá unga aldri verið andlega leitandi og numið flestar trúarhefðir á eigin vegum ásamt því að nema sjamanisma í fjögur ár á árunum 2010-14 hjá Lynn Andrews Sacred Arts and Training. Hún var kennari á þeirri andlegu leið á árunum 2016-2021, ásamt því að vera listmeðferðarfræðingur. Árið 2021 varð hún fyrir andlegri reynslu sem gjörbreytti lífi hennar og tók hún kristna trú og leitast eftir að lifa eftir orði Krists og dreifa fagnaðarerindinu um frið og frelsi. Hún mun fjalla um sína sögu og lífið í Kristi ásamt því sem leikmaður skoða og bera saman þessar tvær hefðir, sjamanismann og kristnina.
Melkorka Edda Freysteinsdóttir hefur áratuga reynslu af lestri tarot spila. Hún mun fjalla um spilin og merkingu þeirra.
Lesfundir eru haldnir hvern sunnudag, frá 6. október til 8. desember á milli kl. 11:00 til 12:30. Fundirnir hefjast á stuttri hugleiðingu og svo er farið í efnið, Jógasútrur Patanjalis, með skýringum A.A.B. Lesefnið er á íslensku.
Hópurinn ræðir um hvernig ævintýrin tala til sálarinnar í gegnum táknmyndir. Ævintýrið er skoðað sem andleg leið til að heila sálina og tengjast hinu heilaga.
Lesfundir eru haldnir hvern sunnudag, frá 6. október til 8. desember á milli kl. 11:00 til 12:30. Fundirnir hefjast á stuttri hugleiðingu og svo er farið í efnið, Jógasútrur Patanjalis, með skýringum A.A.B. Lesefnið er á íslensku.
Hittist þriðja hverja viku á mánudögum kl. 19:00. Þau sem vilja vera með hafi samband við Önnu Ottesen í síma 898-7522. Fundirnir eru haldnir í heimahúsi.
Hugleiðing á fullu tungli: Hugleiðingin er allajafna haldin á degi fulls tungls eða næsta dag á undan og ávallt kl. 20:00. Hver fundur hefst með umfjöllum um viðkomandi stjörnumerki og svo er hugleitt í 20-25 mín.